Stærsti skjálftinn í nótt var nærri Kleifarvatni

Klukkan 05:35 í morgun mældist jarðskjálfti um þrjá kílómetra vestur af Kleifarvatni. Var hann 3,7 að stærð og fannst víða á höfuðborgarsvæðinu.

„Áfram mælist smáskjálftavirkni yfir kvikuganginum, norð-norðaustur af Grindavík. Um 370 jarðskjálftar mældust þar síðustu nótt. Í gær mældust rétt um 1800 skjálftar yfir kvikuganginum. Engin teljandi merki eru um breytta virkni yfir ganginum í nótt og gosórói hefur ekki mælst á jarðskjálftamælum okkar á svæðinu,“ segir í tilkynningu frá náttúruvárhópi Veðurstofunnar.

Stærsti skjálftinn í nótt var nærri Kleifarvatni - Skessuhorn