Baldur við bryggju á föstudaginn en þangað hafði skipinu verið siglt frá Hafnarfirði nóttina áður. Ljósm. sá

Nýr Baldur byrjar siglingar

Tekið var formlega á móti nýrri Breiðafjarðarferju sem ber heitið Baldur við hátíðlega athöfn í Stykkishólmshöfn síðastliðinn föstudag. Fjöldi fólks lagði leið sína niður á höfn til að skoða ferjuna sem einnig var opin fyrir gesti og gangandi. Boðið var upp á kaffi og meðlæti um borð og gafst gestum tækifæri til að skoða farþegarými skipsins. Fulltrúar sveitarfélaga, ríkis og Sæferða klipptu á borða við þetta tilefni og tóku þar með nýja ferju formlega í notkun. Í dag frá klukkan 17-18 býðst íbúum norðan Breiðafjarðar að skoða skipið á Bránslæk.

Nýr Baldur byrjar siglingar - Skessuhorn