Fréttir

true

Telja áfram miklar líkur á eldgosi nærri Grindavík

Sérfræðingar Veðurstofunnar sendu í hádeginu frá sér uppfærða stöðu vegna skjálftavirkni og jarðhræringa á Reykjanesi. „Skjálftavirkni tengd kvikuganginum sem myndaðist fyrir um viku síðan helst nokkuð stöðug frá því í gær. Alls hafa um 2.000 skjálftar mælst síðusta sólarhringinn og er mesta virknin á svæðinu norður af Hagafelli að Sundhnúksgígum. Mest er um smáskjálfta undir…Lesa meira

true

Sementsverksmiðjan hlýtur umhverfisvottun

Nýverið hlaut Sementsverksmiðjan umhverfisvottun samkvæmt alþjóðlega staðlinum ISO 14001. Staðallinn setur fram skýran ramma um hvernig eigi að viðhalda og stjórna umhverfisstjórnunarkerfi í starfsemi fyrirtækja sem vinna markvisst að því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum. Innleiðing á umhverfisstjórnunarkerfi er umfangsmikið ferli og í mörg horn að líta enda markmið vottunarinnar að koma á bæði vöktun…Lesa meira

true

Matvælastofnun þarf að bæta verklag í málum er varða velferð dýra

Ítarleg frásögn af frumkvæðisrannsókn Ríkisendurskoðanda á starfi Matvælastofnunar Ríkisendurskoðun hefur skilað til Alþingis ítarlegri skýrslu um stjórnsýsluúttekt sem gerð var á Matvælastofnun. Skýrslan er frumkvæðisrannsókn Ríkisendurskoðunar sem ákvað í september á síðasta ári, í kjölfar mikillar umræðu um tiltekið dýraverndunarmál í Borgarfirði, að hefja stjórnsýsluúttekt á eftirliti Matvælastofnunar (MAST) með velferð dýra í huga. Var…Lesa meira

true

Þeim þakkað sem kenna íslensku sem annað tungumál

Á degi íslenskrar tungu í gær færði Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands þeim sem kenna íslensku sem erlent mál þakkir við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Efnt var til móttöku fyrir fulltrúa Ísbrúar, félags kennara sem kenna íslensku sem annað tungumál, og afhenti forseti Þorbjörgu Halldórsdóttur, formanni Ísbrúar, þakkarskjal. Við sama tækifæri fengu forseti og allir…Lesa meira

true

Héldu íbúafund um verkefnið DalaAuð

Síðastliðinn þriðjudag var haldinn íbúafundur í Dalabyggð vegna verkefnisins DalaAuður. Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélagsins, SSV og Byggðastofnunar og fellur undir verkefnahattinn Brothættar byggðir. Í tilkynningu segir að íbúafundurinn hafi verið vel heppnaður og voru ýmis mál rædd, meðal annars mikilvægi þess að haldið verði áfram uppbyggingu innviða enda samgöngumálin eitt brýnasta verkefnið í…Lesa meira

true

Dregur úr skráðum í þjóðkirkjuna

Alls voru 226.044 einstaklingar hér á landi skráðir í þjóðkirkjuna 1. nóvember síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.425 síðan 1. desember 2022. Hlutfallið er komið niður í 56,8% landsmanna. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.201 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta…Lesa meira

true

Ráðinn til Reykhólahrepps

Fyrir skömmu hóf störf hjá Reykhólahreppi Hrafnkell Guðnason. Hann var ráðinn til starfa við umsjón framkvæmda og uppbyggingar hjá sveitarfélaginu. Hrafnkell er viðskiptafræðingur með gráðu í alþjóðlegum viðskiptum. Hann var áður atvinnuráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á Suðurlandi. Hrafnkell er Flóamaður, frá Glóru í Flóahreppi, áður Hraungerðishreppi. Hann er með starfsaðstöðu á skrifstofu Reykhólahrepps.Lesa meira

true

Unnið er að rafrænu kerfi mannvirkjaskrár

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi stóðu fyrir opnum fundi á þriðjudaginn þar sem farið var yfir atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðamarkaðar í landshlutanum. Á fundinum fór Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, yfir næstu skref í þróun mannvirkjaskrár, sem er skrá yfir öll mannvirki í landinu, en nú er unnið að rafvæðingu kerfisins. Þetta þýðir að…Lesa meira

true

Auknar tekjur Akraneskaupstaðar og gert ráð fyrir afgangi af rekstri

Rýnt í fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar og þriggja ára áætlun Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir næsta ár og þriggja ára áætlun var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn síðastliðinn þriðjudag. Í upphafi kynningar sagði Haraldur Benediktsson bæjarstjóri að sókn væri í samfélaginu á Akranesi og gert væri ráð fyrir jafnvægi í rekstri á árunum 2023 og 2024, en…Lesa meira

true

Fimmtu urðunarreininni verður bætt við í Fíflholtum

Sorpurðun Vesturlands hf. hefur auglýst tilboð í gerð nýrrar sorpurðunarreinar í Fíflholtum á Mýrum. Um er að ræða urðunarstað fyrir almennan úrgang sem hefur starfsleyfi frá Umhverfisstofnun til að taka við allt að 25.000 tonnum af úrgangi á ári. Í verkinu felst m.a. að grafnir verða upp um 62.000 rúmmetrar af lausum jarðefnum og mótaðar…Lesa meira