Hópurinn sem þakkað var ásamt forsetanum á tröppum Bessastaða. Ljósm. Forsetaembættið

Þeim þakkað sem kenna íslensku sem annað tungumál

Á degi íslenskrar tungu í gær færði Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands þeim sem kenna íslensku sem erlent mál þakkir við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Efnt var til móttöku fyrir fulltrúa Ísbrúar, félags kennara sem kenna íslensku sem annað tungumál, og afhenti forseti Þorbjörgu Halldórsdóttur, formanni Ísbrúar, þakkarskjal. Við sama tækifæri fengu forseti og allir gestir afhenta myndaorðabókina Orð eru ævintýri sem nýverið kom út hjá Menntamálastofnun. Í bókinni er grunnorðaforða íslenskunnar komið til skila með myndrænum hætti og er hún bæði ætluð börnum og nemendum sem læra íslensku sem annað mál. Þess má geta að myndskreyting bókarinnar var m.a. í höndum Borgnesingsins Elínar Elísabetar Einarsdóttur teiknara. Aðrir sem teiknuðu eru Blær Guðmundsdóttir, Böðvar Leós og Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson. Höfundar texta eru ýmsir.

Þeim þakkað sem kenna íslensku sem annað tungumál - Skessuhorn