Dregur úr skráðum í þjóðkirkjuna

Alls voru 226.044 einstaklingar hér á landi skráðir í þjóðkirkjuna 1. nóvember síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.425 síðan 1. desember 2022. Hlutfallið er komið niður í 56,8% landsmanna. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.201 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.956 skráða meðlimi.

Dregur úr skráðum í þjóðkirkjuna - Skessuhorn