
Matvælastofnun á Selfossi starfar eftir lögum nr. 55/2013 um velferð dýra. Í skýrslunni segir: „Þótt lögin sem slík hafi ekki sætt mikilli gagnrýni hafa þau mögulega gefið fólki falskar vonir um framkvæmd þeirra. Þau lögbundnu úrræði sem MAST getur gripið til taka oft tíma meðan almenningur kallar á skjótar aðgerðir. Þá togast á sjónarmið tengd meðalhófi, jafnræði og réttinum til andmæla í anda stjórnsýslulaga og kröfur borgaranna um tafarlaus inngrip þar sem velferð dýra er talin í hættu.“