Grindavík. Ljósm. mm

Telja áfram miklar líkur á eldgosi nærri Grindavík

Sérfræðingar Veðurstofunnar sendu í hádeginu frá sér uppfærða stöðu vegna skjálftavirkni og jarðhræringa á Reykjanesi. „Skjálftavirkni tengd kvikuganginum sem myndaðist fyrir um viku síðan helst nokkuð stöðug frá því í gær. Alls hafa um 2.000 skjálftar mælst síðusta sólarhringinn og er mesta virknin á svæðinu norður af Hagafelli að Sundhnúksgígum. Mest er um smáskjálfta undir 1 að stærð, en í morgun kl. 6.35 mældist skjálfti við Hagafell sem var 3,0 að stærð.“

Samkvæmt GPS mælum heldur aflögun áfram en með minnkandi hraða. Nýjustu líkön sem reiknuð hafa verið út frá GPS mælingum og gervitunglagögnum benda ennþá til þess að mesta gliðnunin á kvikuganginum sé norður af Grindavík nálægt Hagafelli. „Ef kvika nær að brjóta sér leið til yfirborðs, er því ennþá líklegast að það verði á því svæði. Sigdalurinn yfir kvikuganginum er ennþá virkur þó svo að mælingar sýni að það hafi hægst örlítið á siginu á milli daga. Nú sýna GPS mælar sem staðsettir í og við Grindavík nærri miðju sigdalsins sýna um það bil 3-4 cm sig á milli daga.

Út frá samtúlkun á nýjustu gögnum og útreikningum með líkönum eru áfram eru taldar miklar líkur á eldgosi og mestar líkur eru á að það eigi upptök norðan Grindavíkur nálægt Hagafelli.“

Telja áfram miklar líkur á eldgosi nærri Grindavík - Skessuhorn