Horft inn í eina urðunarreinina í Fíflholtum. Ljósm. mm

Fimmtu urðunarreininni verður bætt við í Fíflholtum

Sorpurðun Vesturlands hf. hefur auglýst tilboð í gerð nýrrar sorpurðunarreinar í Fíflholtum á Mýrum. Um er að ræða urðunarstað fyrir almennan úrgang sem hefur starfsleyfi frá Umhverfisstofnun til að taka við allt að 25.000 tonnum af úrgangi á ári. Í verkinu felst m.a. að grafnir verða upp um 62.000 rúmmetrar af lausum jarðefnum og mótaðar manir utan um reinina. Sprengja þarf og losa botnklappir og áætlað að það verði 54.000 rúmmetrar sem þarf ýmist að fleyga eða sprengja. Efnið skal mala. Verklok eru áætluð í apríl 2025. Gert er ráð fyrir að þessi nýja urðunarrein muni duga a.m.k. næstu 12 ár.

Fimmtu urðunarreininni verður bætt við í Fíflholtum - Skessuhorn