Fréttir

true

Nýi Baldur verður til sýnis í dag

Í dag frá klukkan 15-17 verður nýr Baldur til sýnis íbúum í Stykkishólmi og boðið upp á kaffi og veitingar um borð. Skipinu var í gærkvöldi og nótt siglt til nýrrar heimahafnar eftir lagfæringar í Hafnarfirði. Klukkan 15 verður formleg móttaka Baldurs í Stykkishólmi. Á sunnudaginn 19. nóvember frá kl. 17 – 18 verður hægt…Lesa meira

true

Verðmætabjörgun í dag var á mesta hættusvæðinu

Helsta verkefni viðbragðsaðila í Grindavík í dag, fram til kl. 14, hefur verið að hleypa íbúum inn í 90 íbúðir eða fasteignir í Grindavík á mesta hættusvæðinu. Vel hefur gengið, að sögn Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum. „Frá kl. 14 er helsta verkefni viðbragðsaðila að sinna fyrirtækjum sem eru inn á sama svæði sem er…Lesa meira

true

Borgarbyggð gerir samning við Janus heilsueflingu

Um miðjan október síðastliðinn skrifaði Borgarbyggð undir samstarfssamning við Janus heilsueflingu. Með samningnum verður þátttakendum, 60 ára og eldri með lögheimili í Borgarbyggð, boðið upp á tveggja ára markvissa heilsueflingu. Markmiðið er að bæta heilsutengdar forvarnir, efla hreyfifærni þátttakenda og bæta afkastagetu, heilsu og lífsgæði þeirra sem taka þátt. Fram kemur á vef sveitarfélagsins að…Lesa meira

true

Minntust Edduslyssins með athöfn í Grundarfirði

Í gær var þess minnst að sjötíu ár voru liðin frá því að Edda GK 25 frá Hafnarfirði fórst í ofsaveðri á Grundarfirði. Blómakrans var lagður við minnismerkið um Edduslysið en það stendur við hafnarhúsið í Grundarfirði. Í Skessuhorni í vikunni var atburðurinn rifjaður upp með frásögn eins skipverjans sem komst lífs af. Í slysinu…Lesa meira

true

Telja áfram miklar líkur á eldgosi nærri Grindavík

Sérfræðingar Veðurstofunnar sendu í hádeginu frá sér uppfærða stöðu vegna skjálftavirkni og jarðhræringa á Reykjanesi. „Skjálftavirkni tengd kvikuganginum sem myndaðist fyrir um viku síðan helst nokkuð stöðug frá því í gær. Alls hafa um 2.000 skjálftar mælst síðusta sólarhringinn og er mesta virknin á svæðinu norður af Hagafelli að Sundhnúksgígum. Mest er um smáskjálfta undir…Lesa meira

true

Sementsverksmiðjan hlýtur umhverfisvottun

Nýverið hlaut Sementsverksmiðjan umhverfisvottun samkvæmt alþjóðlega staðlinum ISO 14001. Staðallinn setur fram skýran ramma um hvernig eigi að viðhalda og stjórna umhverfisstjórnunarkerfi í starfsemi fyrirtækja sem vinna markvisst að því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum. Innleiðing á umhverfisstjórnunarkerfi er umfangsmikið ferli og í mörg horn að líta enda markmið vottunarinnar að koma á bæði vöktun…Lesa meira

true

Matvælastofnun þarf að bæta verklag í málum er varða velferð dýra

Ítarleg frásögn af frumkvæðisrannsókn Ríkisendurskoðanda á starfi Matvælastofnunar Ríkisendurskoðun hefur skilað til Alþingis ítarlegri skýrslu um stjórnsýsluúttekt sem gerð var á Matvælastofnun. Skýrslan er frumkvæðisrannsókn Ríkisendurskoðunar sem ákvað í september á síðasta ári, í kjölfar mikillar umræðu um tiltekið dýraverndunarmál í Borgarfirði, að hefja stjórnsýsluúttekt á eftirliti Matvælastofnunar (MAST) með velferð dýra í huga. Var…Lesa meira

true

Þeim þakkað sem kenna íslensku sem annað tungumál

Á degi íslenskrar tungu í gær færði Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands þeim sem kenna íslensku sem erlent mál þakkir við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Efnt var til móttöku fyrir fulltrúa Ísbrúar, félags kennara sem kenna íslensku sem annað tungumál, og afhenti forseti Þorbjörgu Halldórsdóttur, formanni Ísbrúar, þakkarskjal. Við sama tækifæri fengu forseti og allir…Lesa meira

true

Héldu íbúafund um verkefnið DalaAuð

Síðastliðinn þriðjudag var haldinn íbúafundur í Dalabyggð vegna verkefnisins DalaAuður. Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélagsins, SSV og Byggðastofnunar og fellur undir verkefnahattinn Brothættar byggðir. Í tilkynningu segir að íbúafundurinn hafi verið vel heppnaður og voru ýmis mál rædd, meðal annars mikilvægi þess að haldið verði áfram uppbyggingu innviða enda samgöngumálin eitt brýnasta verkefnið í…Lesa meira

true

Dregur úr skráðum í þjóðkirkjuna

Alls voru 226.044 einstaklingar hér á landi skráðir í þjóðkirkjuna 1. nóvember síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.425 síðan 1. desember 2022. Hlutfallið er komið niður í 56,8% landsmanna. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.201 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta…Lesa meira