
Í gærkvöldi var kveikt á níu kertum við minnisvarðann um Edduslysið til minningar um þá sem fórust, en auk þess átta kertum fyrir þá sem lifðu slysið af. Það voru þær Björg Ágústsdóttir og Olga Sædís Aðalsteinsdóttir sem komu kertunum fyrir. Ljósm. Tómas Freyr Kristjánsson
Minntust Edduslyssins með athöfn í Grundarfirði
Í gær var þess minnst að sjötíu ár voru liðin frá því að Edda GK 25 frá Hafnarfirði fórst í ofsaveðri á Grundarfirði. Blómakrans var lagður við minnismerkið um Edduslysið en það stendur við hafnarhúsið í Grundarfirði. Í Skessuhorni í vikunni var atburðurinn rifjaður upp með frásögn eins skipverjans sem komst lífs af. Í slysinu létust níu úr áhöfn en átta björguðust. Flestir í áhöfn voru úr Hafnarfirði.