
Verðmætabjörgun í dag var á mesta hættusvæðinu
Helsta verkefni viðbragðsaðila í Grindavík í dag, fram til kl. 14, hefur verið að hleypa íbúum inn í 90 íbúðir eða fasteignir í Grindavík á mesta hættusvæðinu. Vel hefur gengið, að sögn Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum. „Frá kl. 14 er helsta verkefni viðbragðsaðila að sinna fyrirtækjum sem eru inn á sama svæði sem er rauðlitað á meðfylgjandi kort frá Veðurstofu Íslands. Fyrirkomulag morgundagsins verður með svipuðum hætti. Unnið verður áfram með íbúa á mesta hættusvæði bæjarins,“ segir Úlfar í tilkynningu sem var að berast.
„Viðbragðsaðilar vilja koma á framfæri þakklæti til íbúa Grindavíkur og þeirra sem reka þar fyrirtæki fyrir góða samvinnu við erfiðar aðstæður. Hugur okkar er hjá íbúum Grindavíkur en margir viðbragðsaðilar koma úr þeirra röðum,“ segir í tilkynningu frá Úlfari lögreglustjóra.