Fréttir

true

Ráðinn til Reykhólahrepps

Fyrir skömmu hóf störf hjá Reykhólahreppi Hrafnkell Guðnason. Hann var ráðinn til starfa við umsjón framkvæmda og uppbyggingar hjá sveitarfélaginu. Hrafnkell er viðskiptafræðingur með gráðu í alþjóðlegum viðskiptum. Hann var áður atvinnuráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á Suðurlandi. Hrafnkell er Flóamaður, frá Glóru í Flóahreppi, áður Hraungerðishreppi. Hann er með starfsaðstöðu á skrifstofu Reykhólahrepps.Lesa meira

true

Unnið er að rafrænu kerfi mannvirkjaskrár

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi stóðu fyrir opnum fundi á þriðjudaginn þar sem farið var yfir atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðamarkaðar í landshlutanum. Á fundinum fór Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, yfir næstu skref í þróun mannvirkjaskrár, sem er skrá yfir öll mannvirki í landinu, en nú er unnið að rafvæðingu kerfisins. Þetta þýðir að…Lesa meira

true

Auknar tekjur Akraneskaupstaðar og gert ráð fyrir afgangi af rekstri

Rýnt í fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar og þriggja ára áætlun Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir næsta ár og þriggja ára áætlun var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn síðastliðinn þriðjudag. Í upphafi kynningar sagði Haraldur Benediktsson bæjarstjóri að sókn væri í samfélaginu á Akranesi og gert væri ráð fyrir jafnvægi í rekstri á árunum 2023 og 2024, en…Lesa meira

true

Fimmtu urðunarreininni verður bætt við í Fíflholtum

Sorpurðun Vesturlands hf. hefur auglýst tilboð í gerð nýrrar sorpurðunarreinar í Fíflholtum á Mýrum. Um er að ræða urðunarstað fyrir almennan úrgang sem hefur starfsleyfi frá Umhverfisstofnun til að taka við allt að 25.000 tonnum af úrgangi á ári. Í verkinu felst m.a. að grafnir verða upp um 62.000 rúmmetrar af lausum jarðefnum og mótaðar…Lesa meira

true

Borgarbyggð áfrýjar dómi til Hæstaréttar

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar dómi Landsréttur frá 23. júní síðastliðnum. Þar tapaði sveitarfélagið máli sem Gunnar Jónsson eigandi Króks í Norðurárdal vísaði til réttarins í kjölfar þess að hafa tapað því fyrir héraðsdómi. Málið snýst um greiðsluþátttöku sveitarfélagsins í girðingu sem Gunnar lét reisa á mörkum afréttar og Krókslands. Vísaði hann…Lesa meira

true

Gott kvöld í Bjargi

Kaupmenn búa sig nú af kappi fyrir jólavertíðina sem framundan er. Ýmis spennandi tilboð sem ýmist eru kennd við dag einhleypra, svartan föstudag eða annað. Í versluninni Bjargi við Stillholt á Akranesi er hins vegar Gott kvöld í dag, á degi íslenskrar tungu. Opið verður til klukkan 22 í kvöld og margt freistandi tilboða í…Lesa meira

true

Mælir fyrir frumvarpi um Náttúrufræðistofnun

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mælti á Alþingi á þriðjudaginn fyrir frumvarpi um nýja Náttúrufræðistofnun. Frumvarpið felur í sér að Landmælingar Íslands og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn verði hluti af Náttúrufræðistofnun Íslands, sem við breytingarnar fái heitið Náttúrufræðistofnun. Stefnt er að því að í stað átta stofnana sem heyra undir ráðuneytið verði til þrjár…Lesa meira

true

Safnar íþróttavörum fyrir fátæk börn í heimalandinu

Knattspyrnukonan Samira Suleman hefur spilað með kvennaliði ÍA síðustu tvö tímabil. Hún fer alltaf heim til Ghana yfir hátíðarnar. Samira hefur það fyrir reglu að taka með sér eins mikið af íþróttavörum og hún kemur fyrir í farangrinum sínum og gefur svo fátækum börnum í heimalandinu allan varninginn. Á FB síðu Knattspyrnufélags ÍA kemur fram…Lesa meira

true

Barnaþingmenn heimsækja Alþingishúsið í dag

Þriðja barnaþingið, sem umboðsmaður barna stendur fyrir, verður haldið á morgun föstudaginn 17. nóvember í Silfurbergi í Hörpu. Um 150 börn eru skráð til þingsins. Eru þau á aldrinum 11-15 ára og koma víðs vegar að af landinu. Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands mun setja þingið klukkan 9 í fyrramálið en síðan hefjast umræður milli…Lesa meira

true

Útvarp Akraness verður í loftinu fyrstu dagana í desember

Útvarp Akranes er í hugum margra Skagamanna órjúfanlegur hluti af jólaundirbúningnum en útvarpað er fyrstu helgina í aðventu ár hvert. Í ár verður því útvarpað helgina 1.-3. desember. „Dagskráin er fjölbreytt, fræðandi og skemmtileg, allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Gamlir þættir í bland við nýja. Við verðum í loftinu á FM 95,0…Lesa meira