
Sundfélag Akraness hlaut árið 2019 Menningarverðlaun Akraness fyrir Útvarp Akraness. Verðlaunin eru veitt þeim einstaklingum eða félagasamtökum sem þykja hafa skarað fram úr á sviði menningar í bæjarfélaginu. Á myndinni eru fulltrúar félagsins ásamt þáverandi bæjarstjóra og formanni menningarnefndar. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Útvarp Akraness verður í loftinu fyrstu dagana í desember
Útvarp Akranes er í hugum margra Skagamanna órjúfanlegur hluti af jólaundirbúningnum en útvarpað er fyrstu helgina í aðventu ár hvert. Í ár verður því útvarpað helgina 1.-3. desember. „Dagskráin er fjölbreytt, fræðandi og skemmtileg, allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Gamlir þættir í bland við nýja. Við verðum í loftinu á FM 95,0 og á www.iasund.is alla helgina,“ segir í tilkynningu frá Útvarpi Akraness.