Barnaþingmenn heimsækja Alþingishúsið í dag

Þriðja barnaþingið, sem umboðsmaður barna stendur fyrir, verður haldið á morgun föstudaginn 17. nóvember í Silfurbergi í Hörpu. Um 150 börn eru skráð til þingsins. Eru þau á aldrinum 11-15 ára og koma víðs vegar að af landinu. Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands mun setja þingið klukkan 9 í fyrramálið en síðan hefjast umræður milli barnaþingmanna á vinnuborðum. Eftir hádegishlé mæta fullorðnir boðsgestir til að taka þátt í áframhaldandi umræðu um þau umfjöllunarefni sem börnin hafa valið. Niðurstöður umræðunnar verða kynntar ríkisstjórn sem framlag til stefnumótunar í málefnum barna. Skemmtiatriði verða fléttuð í auknum mæli inn í dagskrá fundarins í stað sérstakrar hátíðardagskrár. Verndari barnaþings er frú Vigdís Finnbogadóttir.

Barnaþingmenn heimsækja Alþingishúsið í dag - Skessuhorn