
Guðlaugur Þór Þórðarson
Mælir fyrir frumvarpi um Náttúrufræðistofnun
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mælti á Alþingi á þriðjudaginn fyrir frumvarpi um nýja Náttúrufræðistofnun. Frumvarpið felur í sér að Landmælingar Íslands og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn verði hluti af Náttúrufræðistofnun Íslands, sem við breytingarnar fái heitið Náttúrufræðistofnun. Stefnt er að því að í stað átta stofnana sem heyra undir ráðuneytið verði til þrjár öflugri og stærri.