Fréttir

true

,,Maður er alltaf tengdur sveitinni sinni“

Rætt við húsasmíðameistarann Guðjón Fr. Jónsson frá Einfætingsgili á Ströndum Strandamaðurinn og Borgfirðingurinn Guðjón Friðbjörn Jónsson fæddist á Hólmavík 16. júní 1958 en ólst upp í Bitrufirði á Ströndum. Guðjón er giftur Margréti Vagnsdóttur sem er frá Bolungarvík og eiga þau saman dótturina Ágústu Höllu. Þau hafa búið í Borgarfirði frá árinu 2005 en fjölskyldan…Lesa meira

true

Sjötíu ár í dag frá mannskæðu sjóslysi í Grundarfirði

Í dag, 16. nóvember, eru 70 ár liðin frá því að síldveiðiskipið Edda GK 25 fórst í aftakaveðri út á Grundarfirði. Óveður gerði um allt land þennan örlagaríka dag árið 1953. Af 17 manna áhöfn skipsins fórust níu sjómenn og voru þeir nær allir Hafnfirðingar og flestir fjölskyldumenn. Í slysinu urðu alls 18 börn föðurlaus.…Lesa meira

true

Bríet fær fimm milljónir spilana á myndband sem tekið var upp í Akranesvita

Tónlistarkonan vinsæla Bríet Ísis Elfar heimsótti Akranesvita fyrir þremur árum síðan ásamt tónlistarmanninum Rubin Pollock. Þau tóku þá upp myndband þar sem þau flytja lagið Bang Bang sem deilt var á samfélagsmiðlinum Tik Tok fyrir viku síðan en myndbandið hefur fengið um fimm milljónir spilana á þessum örfáu dögum. En segir Hilmar Sigvaldason vitavörður að…Lesa meira

true

Blása gegn einelti

Á degi íslenskrar tungu, á morgun fimmtudaginn 16. nóvember, býður Tónlistarskóli Stykkishólms til lúðrasveitartónleika í Stykkishólmskirkju. Yfirskrift tónleikanna er blásið gegn einelti. Sérstakur gestur verður tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson sem nýverið opnaði sig opinberlega um einelti sem hann varð fyrir í æsku. Júlí Heiðar mun segja tónleikagestum stuttlega frá sinni reynslu auk þess að syngja…Lesa meira

true

Hrútaskráin komin út

Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna veturinn 2023-2024 er komin á vef RML, en prentaða útgáfan er sömuleiðis væntanleg (sjá einnig link hér). Að þessu sinni standa 48 úrvalshrútar til boða í komandi sæðingavertíð en útsending sæðis mun hefjast 1. desember nk. og standa til 20. desember. Af þessum 48 hrútum eru 27 hyrndir, 16 kollóttir, 2 feldfjárhrútar og…Lesa meira

true

Talsverður samdráttur í útflutningi sjávarafurða

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 26,9 milljörðum króna í október samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti nýlega. Það er tæplega 14% samdráttur miðað við október í fyrra. Gengi krónunnar var að jafnaði rétt rúmlega 1% lægra nú í október en í sama mánuð í fyrra, miðað við gengisvísitölu Seðlabankans, og er samdrátturinn því aðeins meiri í erlendri…Lesa meira

true

Orka sem þú sérð, finnur og heyrir

Í Gestastofu Snæfellsness að Breiðabliki lauk í gær ársfundi fulltrúaráðs Svæðisgarðs Snæfellsness. Að sögn Ragnhildar Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra svæðisgarðsins, var mikill samhugur og kraftur í fundarmönnum. Á meðfylgjandi mynd klæðast þeir allir Snæfellsness bolum og mætti segja að slagorð á þeim eigi einkar vel við hópinn: „Orka sem þú sérð, finnur og heyrir – Áfram Snæfellsnes!“Lesa meira

true

Gluggahöllin í Borgarnesi sérhæfir sig í gluggum og hurðum

Gluggahöllin er fyrirtæki sem upphaflega var stofnað árið 2012 samkvæmt kennitölu, en stofnárið er í raun 2020 þar sem í upphafi var ákveðið að kaupa eldra félag og nafnabreyta því. Fyrirtækið flutti starfsemi sína í Borgarnes fyrir nokkrum mánuðum. Hjónin Júlíus Árni Rafnsson og Helle Larsen eiga og reka fyrirtækið sem er til húsa í…Lesa meira

true

Húsnæðismarkaður heldur ekki í við fólksfjölgun

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi stóðu fyrir opnum fundi í gær, þriðjudag, þar sem farið var yfir atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðamarkaðar í landshlutanum. Á fundinum kom fram að áætlað sé að byggja um 20.000 íbúðir á landsvísu á næstu fimm árum. Af þeirri tölu er áætlaður hluti Vesturlands 906 íbúðir. Lítil hreyfing hefur orðið á íbúðamarkaði…Lesa meira

true

Breyting á reglugerð um sjókvíaeldi

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingum á reglugerð um fiskeldi. Breytingarnar eru gerðar að höfðu samráði við Matvælastofnun og Hafrannsóknastofnun og leggja m.a. þá skyldu á herðar framleiðenda að tryggja að lax verði ekki kynþroska á eldistíma. Sett verði nánari tæknileg skilyrði um notkun ljósastýringar en lýsing er notuð…Lesa meira