Svipmynd af fundinum sem fór fram í gær í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Ljósm. sþ

Húsnæðismarkaður heldur ekki í við fólksfjölgun

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi stóðu fyrir opnum fundi í gær, þriðjudag, þar sem farið var yfir atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðamarkaðar í landshlutanum. Á fundinum kom fram að áætlað sé að byggja um 20.000 íbúðir á landsvísu á næstu fimm árum. Af þeirri tölu er áætlaður hluti Vesturlands 906 íbúðir. Lítil hreyfing hefur orðið á íbúðamarkaði undanfarna mánuði en eins og er eru 190 íbúðir til sölu á Vesturlandi samkvæmt samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Húsnæðismarkaður heldur ekki í við fólksfjölgun - Skessuhorn