Breyting á reglugerð um sjókvíaeldi

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingum á reglugerð um fiskeldi. Breytingarnar eru gerðar að höfðu samráði við Matvælastofnun og Hafrannsóknastofnun og leggja m.a. þá skyldu á herðar framleiðenda að tryggja að lax verði ekki kynþroska á eldistíma. Sett verði nánari tæknileg skilyrði um notkun ljósastýringar en lýsing er notuð í eldiskvíum til að stýra eða hindra kynþroska laxa. Einnig er gert ráð fyrir að Matvælastofnun fái auknar heimildir til eftirlits með kynþroska í eldiskvíum og sláturhúsum.

Breyting á reglugerð um sjókvíaeldi - Skessuhorn