
Vélbáturinn Edda GK siglir hér nýsmíðaður og fánum prýddur líklega árið 1944. Báturinn var smíðaður í skipasmíðastöðinni Dröfn. Ljósm. ferlir.is
Sjötíu ár í dag frá mannskæðu sjóslysi í Grundarfirði
Í dag, 16. nóvember, eru 70 ár liðin frá því að síldveiðiskipið Edda GK 25 fórst í aftakaveðri út á Grundarfirði. Óveður gerði um allt land þennan örlagaríka dag árið 1953. Af 17 manna áhöfn skipsins fórust níu sjómenn og voru þeir nær allir Hafnfirðingar og flestir fjölskyldumenn. Í slysinu urðu alls 18 börn föðurlaus. Átta mönnum var bjargað. Eftirfarandi grein ritaði Ágúst Stefánsson vélstjóri árið 2003 og birtist hún upphaflega í Sjómannablaðinu Víkingi það ár, þegar 50 ár voru liðin frá slysinu. Ágúst var þá einn þriggja eftirlifenda sem voru á lífi. Ágúst lést 4. september á þessu ári.