Fréttir

true

Hátt uppi við störf sín

Starf hafnarvarða geta verið fjölbreytt og ekki alltaf setið við tölvu við að skrá inn aflatölur. Það fékk Þórður Björnsson hafnarvörður í Snæfellsbæ að kynnast þegar hann var að setja upp kastara á ljósamastrið í Rifshöfn nú í vikunni. Mastrið lýsir á nýja bílaplanið og var Þórður hátt uppi þegar myndin er tekin. Augljóslega var…Lesa meira

true

E. Sigurðsson með lægsta tilboð í næsta áfanga íþróttahússins á Jaðarsbökkum

Síðastliðinn mánudag voru á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Akraneskaupstaðar kynnt tilboð í innanhússfrágang nýja íþróttahússins á Jaðarsbökkum. Alls bárust fjögur tilboð í verkið. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúman 1,1 milljarð króna og kynnti verkfræðistofan Mannvit umsögn sína um hagstæðasta tilboðið. Byggingarfélagið Bestla ehf. var með tilboð upp á tæplega 1,7 milljarða króna sem er um…Lesa meira

true

Kaffiboð til heiðurs Hilmari skólastjóra

Nú í vikunni lét Hilmar Snorrason af störfum sem skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna eftir langt og farsælt starf. Hélt Landsbjörg kaffiboð honum til heiðurs í Sæbjörginni. „Vill stjórn félagsins og starfsfólk skrifstofu þakka Hilmari fyrir ómetanlegt starf í þágu félagsins undanfarin 32 ár. Hilmar og hans starfsfólk hefur lyft grettistaki í slysavörnum sjómanna á undanförnum áratugum,“…Lesa meira

true

Metfjöldi kylfinga og golfið er nú næstfjölmennasta íþróttagreinin

Golfíþróttin er í stöðugum vexti hér á landi og hafa kylfingar aldrei verið fleiri en nú. Í tilkynningu frá Golfsambandi Íslands kemur fram að um mitt þetta ár voru 24.201 félagsmenn skráðir í golfklúbba víðs vegar um landið og er golf því næst fjölmennasta íþróttagreinin sem stunduð er innan ÍSÍ, á eftir knattspyrnu þar sem…Lesa meira

true

Opnun á sýningunni Sjókonur á Snæfellsnesi

Næsta sunnudag klukkan 16 verður opnuð í Gestastofu Snæfellsness á Breiðabliki sýningin Sjókonur á Snæfellsnesi. Sýningin er byggð á rannsóknum Margaret Willson sem er höfundur bókar um Sjókonur á Íslandi, Seawoman of Iceland: Survival on the Edge (2016) og í ár kom út eftir hana bók um Þuríði Einarsdóttur kvenskörung frá Eyrarbakka sem var þekktust…Lesa meira

true

Ný stefna í vinnslu í sorpmálum á Akranesi

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar sem fór fram 30. október síðastliðinn kynnti Lárus Ársælsson umhverfisstjóri bæjarins minnisblað um fyrirkomulag endurvinnslustöðvar Gámu við Höfðasel vegna nýrrar stefnu í sorpmálum sem nefnist „Greitt þegar hent er.“ Í því felst að fella niður klippikort sem nú eru í notkun og í staðinn verða allir rukkaðir fyrir losun…Lesa meira

true

Landsátak í sundi stendur yfir í nóvember

Syndum, landsátak í sundi, var ræst með formlegum hætti í Sundlaug Kópavogs í gær. „Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Þeir metrar sem landsmenn synda, á meðan á átakinu stendur, safnast saman og á forsíðu…Lesa meira

true

Þrjú tilboð bárust í niðurrif í sal íþróttahússins við Vesturgötu

Fram undan eru viðamiklar endurbætur á íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi en íþróttasal og kjallara var lokað með litlum fyrirvara í lok september vegna loftgæðavandamála. Úttekt Verkís á húsnæði íþróttahússins við Vesturgötu á Akranesi, frá því í september, leiddi m.a. í ljós ófullnægjandi rakavarnarlag í þaki, ónýtt byggingarefni í neðri hluta þaks, gaflveggjum og í…Lesa meira

true

Lokahóf meistaraflokks Skallagríms 2023

Meistaraflokkur Skallagríms í knattspyrnu gerði sér glaðan dag laugardaginn 21. október síðastliðinn þar sem keppnistímabilið 2023 var gert upp. Lokahófið fór fram á Landnámssetri Íslands í Borgarnesi þar sem liðið borðaði saman. Veittar voru viðurkenningar fyrir besta leikmanninn, efnilegasta og markahæsta leikmanninn og einnig fyrir að ná ákveðnum fjölda leikja fyrir félagið. Carlos Castellano var…Lesa meira

true

Jafnvægisverð fyrir mjólk á markaði er nú 300 krónur á lítra

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn 1. nóvember. Matvælaráðuneytinu bárust nú 47 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 26. Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 389 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 300 kr./ltr. Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði/hámarksverði…Lesa meira