Hafist handa við uppsetningu sýningarinnar. Ljósm. aðsend

Opnun á sýningunni Sjókonur á Snæfellsnesi

Næsta sunnudag klukkan 16 verður opnuð í Gestastofu Snæfellsness á Breiðabliki sýningin Sjókonur á Snæfellsnesi. Sýningin er byggð á rannsóknum Margaret Willson sem er höfundur bókar um Sjókonur á Íslandi, Seawoman of Iceland: Survival on the Edge (2016) og í ár kom út eftir hana bók um Þuríði Einarsdóttur kvenskörung frá Eyrarbakka sem var þekktust fyrir formennsku sína á sjó á 19. öld; Woman, Captain, Rebel. Sýningin verður opin alla daga næstu mánuði frá klukkan 10-15 og er hún á íslensku og ensku.

Opnun á sýningunni Sjókonur á Snæfellsnesi - Skessuhorn