Íþróttahúsið við Vesturgötu hefur verið lokað frá því í lok september. Ljósm. vaks

Þrjú tilboð bárust í niðurrif í sal íþróttahússins við Vesturgötu

Fram undan eru viðamiklar endurbætur á íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi en íþróttasal og kjallara var lokað með litlum fyrirvara í lok september vegna loftgæðavandamála. Úttekt Verkís á húsnæði íþróttahússins við Vesturgötu á Akranesi, frá því í september, leiddi m.a. í ljós ófullnægjandi rakavarnarlag í þaki, ónýtt byggingarefni í neðri hluta þaks, gaflveggjum og í veggjum ofan við áhorfendastúku. Einnig kom fram að loftræsting salarins var ábótavant.

Þrjú tilboð bárust í niðurrif í sal íþróttahússins við Vesturgötu - Skessuhorn