
Carlos Javier var valinn besti leikmaðurinn 2023. Ljósm. FB síða Skallagríms
Lokahóf meistaraflokks Skallagríms 2023
Meistaraflokkur Skallagríms í knattspyrnu gerði sér glaðan dag laugardaginn 21. október síðastliðinn þar sem keppnistímabilið 2023 var gert upp. Lokahófið fór fram á Landnámssetri Íslands í Borgarnesi þar sem liðið borðaði saman. Veittar voru viðurkenningar fyrir besta leikmanninn, efnilegasta og markahæsta leikmanninn og einnig fyrir að ná ákveðnum fjölda leikja fyrir félagið.