Fréttir

true

Hægt að sækja um styrki til byggðaþróunarverkefna

Innviðaráðherra auglýsir nú eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð C.1 – Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða. „Landshlutasamtök sveitarfélaga geta í samstarfi við haghafa í hverjum landshluta sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans eða landshlutanum í…Lesa meira

true

Hefja umræðu um sameiningu

Á sveitarstjórnarfundi í Eyja- og Miklaholtshreppi um miðjan októbermánuð var lögð fram umsögn innviðaráðuneytisins um álit sveitarstjórnar á stöðu sveitarfélagsins, getu þess til að sinna lögbundnum verkefnum og um þau tækifæri sem felast í mögulegum kostum sameiningar sveitarfélagins við annað eða önnur sveitarfélög. Samhliða sveitarstjórnarkosningum vorið 2022 var framkvæmd skoðanakönnunin meðal íbúa um vilja þeirra…Lesa meira

true

Vilja fá meðhöndlunarskip til að geta átt við laxalúsina

Laxeldisfyrirtækjum á sunnanverðum Vestfjörðum hefur gengið erfiðlega að hafa stjórn á fjölgun laxalúsar í sjóeldiskvíum í Patreksfjarðarflóa síðan í vor. Þá hafa rannsóknir á fiskum úr Táknafirði leitt í ljós að umhverfisbakteríur (m.a. Tenacibaculum sp.) hafa sýkt sárin sem mynduðust vegna lúsa og gert þau mun umfangsmeiri. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að þessi…Lesa meira

true

Haustfagnaður sauðfjárbænda í Dölum – myndasyrpa

Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu stóð að venju fyrir Haustfagnaði um liðna helgi en það hefur um árabil tíðkast í tengslum við veturnætur eða fyrsta vetrardag. Þar var farið yfir það bitastæðasta í sauðfjárræktinni á svæðinu. Haustfagnaðurinn hófst á lambhrútasýningu norðan varnargirðingar sem sker sýsluna í tvö varnarhólf. Það voru þau Monica og Harald bændur að…Lesa meira

true

Breytingar fyrirhugaðar á uppbyggingu barnaverndarþjónustu

Á fundi fræðslunefndar Borgarbyggðar 31. október síðastliðinum var til umræðu samstarf sveitarfélagsins við Hvalfjarðarsveit á sviði barnaverndamála, en mennta- og barnamálaráðuneytið gerir nú ríkari kröfur til sveitarfélaga á sviði barnaverndarþjónustu. Ákveðið hefur verið að horfa til samstarfs við fleiri sveitarfélög til að uppfylla þær kröfur sem barnamálaráðuneytið hefur sett ásamt því að skoða bakvaktafyrirkomulag í…Lesa meira

true

Fjör á Hrekkjavöku á Akranesi – Myndasyrpa

Það voru margar skrýtnar verur á ferli seinni part dags á Akranesi í gær þegar krakkar gengu um bæinn og bönkuðu á dyr til að fá grikk eða gott. Kolbrún Ingvarsdóttir var á ferðinni um Skógarhverfið á Skaganum í gær og tók myndir af furðuverum, stórum sem smáum og flestum hryllilegum. Um kvöldið var svo…Lesa meira

true

“Það er gott að gefa fólki tækifæri til að safnast saman í þágu síns nærumhverfis“

Rætt við Arnheiði Hjörleifsdóttur umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar Arnheiður Hjörleifsdóttir er fædd í Reykjavík, alin upp á Akranesi frá sex ára aldri en býr í dag á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði þar sem hún rekur ferðaþjónustu ásamt því að vera með búskap. Í byrjun síðasta árs auglýsti Hvalfjarðarsveit starf umhverfisfulltrúa en starfið var þá nýtt af nálinni hjá…Lesa meira

true

Snæfell tapaði á móti Íslandsmeisturunum

Snæfell og Valur mættust í sjöundu umferð Subway deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Valskonur skoruðu fyrstu sjö stigin í leiknum áður en Mammusu Secka setti niður þrist fyrir Snæfell þegar tæpar fjórar mínútur voru liðnar af fyrsta leikhluta. Þegar tvær mínútur voru eftir leiddi Valur með tíu stigum,…Lesa meira

true

Rýmka á bæjarskrifstofunni

Akraneskaupstaður hefur tekið á leigu 320 fm rými í verslanamiðstöðinni við Dalbraut 1, þar sem útibú Íslandsbanka verður fram á næsta föstudag. Það eru Reitir – verslun ehf. sem á þennan hluta hússins. Verður húsnæðið afhent bæjarfélaginu eftir nokkrar vikur. Að sögn Haraldar Benediktssonar bæjarstjóra er megin markmiðið með samningnum að rýmka á starfsemi bæjarskrifstofunnar…Lesa meira

true

Skrifað undir samning um rekstur á nýja Baldri

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Sæferða, skrifuðu á mánudaginn undir samning þess efnis að Sæferðir taki að sér rekstur nýrrar Breiðafjarðarferju sem mun sigla undir nafninu Baldur eins og fyrri ferjur. Áætlað er að nýr Baldur hefji áætlunarsiglingar um Breiðafjörð upp úr miðjum nóvember en vætutíð hefur seinkað vinnu við endurbætur…Lesa meira