
Laxalús.
Vilja fá meðhöndlunarskip til að geta átt við laxalúsina
Laxeldisfyrirtækjum á sunnanverðum Vestfjörðum hefur gengið erfiðlega að hafa stjórn á fjölgun laxalúsar í sjóeldiskvíum í Patreksfjarðarflóa síðan í vor. Þá hafa rannsóknir á fiskum úr Táknafirði leitt í ljós að umhverfisbakteríur (m.a. Tenacibaculum sp.) hafa sýkt sárin sem mynduðust vegna lúsa og gert þau mun umfangsmeiri. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að þessi sár gera það að verkum að fiskurinn missir getuna til að halda lífsnauðsynlegu jónajafnvægi í líkamanum. Í Tálknafirði hefur þetta gert það að verkum að hluti fisksins hefur veiklast á skömmum tíma. Sá fiskur sem nú er verið að farga fer í meltugerð sem notuð er m.a. í loðdýrafóður. Fiskurinn fer ekki til manneldis.“