Mammusu Secka var stigahæst hjá Snæfelli gegn Val. Ljósm sá

Snæfell tapaði á móti Íslandsmeisturunum

Snæfell og Valur mættust í sjöundu umferð Subway deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Valskonur skoruðu fyrstu sjö stigin í leiknum áður en Mammusu Secka setti niður þrist fyrir Snæfell þegar tæpar fjórar mínútur voru liðnar af fyrsta leikhluta. Þegar tvær mínútur voru eftir leiddi Valur með tíu stigum, 9:19, og þegar heyrðist í flautunni var staðan á svipuðum nótum, 17:26 Val í vil. Nokkuð jafnræði var með liðunum í öðrum leikhluta þar sem heimakonur náðu að jafna í 26:26 eftir tveggja mínútna leik og komust síðan yfir með þriggja stiga körfu frá Ingigerði Sól Hjartardóttur. Þá svöruðu gestirnir með þrettán stigum í röð en Jasmina Jones átti síðasta orðið og körfuna fyrir Snæfell, staðan 31:39 fyrir Val í hálfleik.

Snæfell tapaði á móti Íslandsmeisturunum - Skessuhorn