Kýr á Hvanneyri. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Ljósm. úr safni/mm

Jafnvægisverð fyrir mjólk á markaði er nú 300 krónur á lítra

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn 1. nóvember. Matvælaráðuneytinu bárust nú 47 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 26. Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 389 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 300 kr./ltr.

Jafnvægisverð fyrir mjólk á markaði er nú 300 krónur á lítra - Skessuhorn