
Nýja íþróttahúsið á Jaðarbökkum er að rísa. Ljósm. vaks
E. Sigurðsson með lægsta tilboð í næsta áfanga íþróttahússins á Jaðarsbökkum
Síðastliðinn mánudag voru á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Akraneskaupstaðar kynnt tilboð í innanhússfrágang nýja íþróttahússins á Jaðarsbökkum. Alls bárust fjögur tilboð í verkið. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúman 1,1 milljarð króna og kynnti verkfræðistofan Mannvit umsögn sína um hagstæðasta tilboðið.