Fréttir

true

Akranesmet í sundi og fjöldi verðlauna eftir mót helgarinnar

Einar Margeir Ágústsson, sundmaður á Akranesi, setti um helgina unglingamet og náði lágmarki á Evrópumeistaramótið í 25 metra laug. 14 sundmenn frá ÍA tóku þátt á Cube-móti SH í Ásvallalaug í Hafnarfirði en á mótinu tóku þátt 276 sundmenn. Einar Margeir setti nýtt íslenskt unglingamet í 50 metra bringusundi á tímanum 27,24, sem var undir…Lesa meira

true

Snæfell úr leik í VÍS bikar karla eftir tap á móti Hetti

Snæfell og Höttur mættust í 32-liða úrslitum VÍS bikars karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Fyrstu deildar liði Snæfells gekk ágætlega að halda í við gestina til að byrja með í fyrsta leikhluta en Höttur leikur í efstu deild karla, Subway deildinni. Þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af leikhlutanum…Lesa meira

true

Dregið hefur úr nýbyggingum á Vesturlandi um 85% á hálfu ári

Samkvæmt nýjustu talningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) var uppbygging íbúða mest á höfuðborgarsvæðinu í september síðastliðnum. Þar eru 69,2% af öllum íbúðum sem eru í byggingu í landinu. Flestar íbúðir eru í byggingu í Reykjavík (2.607 íbúðir) og næstflestar eru í Hafnarfirði (1.605 íbúðir). Utan höfuðborgarsvæðisins eru flestar íbúðir í byggingu í sveitarfélaginu Árborg (586…Lesa meira

true

Mannréttindi og jafnrétti á lífsnámsdögum í Menntaskóla Borgarfjarðar

Síðdegis á fimmtudaginn opnuðu nemendur og starfsfólk Menntaskóla Borgarfjarðar dyr skólans og sýndu gestum afrakstur lífsnámsviku sem þá var að ljúka. Í þessari viku, sem er á hverri önn í skólastarfinu, er hefðbundin stundaskrá brotin upp, nemendur velja sér hópa og vinna skemmtileg verkefni. Signý Óskarsdóttir hjá MB tók saman fyrir Skessuhorn upplýsingar um lífsnámið:…Lesa meira

true

Samstarfi um Umhverfis- og skipulagssvið á Snæfellsnesi slitið

Árið 2021 ákváðu fjögur sveitarfélög á Snæfellsnesi að stofna nýtt sameiginlegt svið umhverfis- og skipulagsmála. Þetta voru Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær,  Helgafellssveit og Stykkishólmsbær, en þau tvö síðastnefndu hafa nú eins og kunnugt er sameinast í eitt sveitarfélag, Sveitarfélagið Stykkishólm. Auglýst var eftir sviðsstjóra umhverfis- og skipulagsmála til að stýra nýju sviði og leiða þróun…Lesa meira

true

G.Run styrkir Krabbameinsfélag Snæfellsness

Miðvikudaginn 18. október síðastliðinn auglýsti fyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf fisksölu til styrktar Krabbameinsfélagi Snæfellsness. Fyrirtækið hefur selt ferskt gæða fiskmeti einu sinni í viku en þennan miðvikudag rann allur ágóðinn til Krabbameinsfélagsins. Viðtökur voru framar vonum og seldist töluvert meira en venjulega. Það var svo á bleikum föstudegi 20. október að þær Eygló Kristjánsdóttir og…Lesa meira

true

Ráðstefnan „Laun fyrir lífi – ungra bænda og íslenskra sveita“

Næstkomandi fimmtudag klukkan 13 efna Samtök ungra bænda til baráttufundar fyrir lífi sínu og sveitanna. Fer fundurinn fram í Salnum í Kópavogi. Átta ungir bændur munu taka til máls auk þriggja gestafyrirlesara auk þess sem málin verða rædd í pallborði með þátttöku gesta í sal. „Vonast er eftir troðfullu húsi og góðri mætingu ráðherra og…Lesa meira

true

Sóttu örmagna göngumann á Skarðsheiði

Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út til leitar og björgunar um klukkan 23 í gærkvöldi og leitarbeiðni ítrekuð hálfri annarri klukkustund síðar og sérstök áhersla lögð á að fá vant göngufólk til björgunar. Borist hafði hjálparbeiðni frá örmagna göngumanni á fjallinu og var hann staðsettur á milli Heiðarhorns og Skessuhorns. Björgunarsveitir frá Borgarfirði, Akranesi og…Lesa meira

true

Skallagrímur með sigur en ÍA og Snæfell tapleiki

Á föstudaginn voru sex leikir spilaðir í fyrstu deild karla í körfubolta. Leikir Vesturlandsliðanna fóru þannig að ÍR lagði Snæfell í Skógarseli í Reykjavík með 101 stigi gegn 76. Skagamenn tóku á móti Sindra á Jaðarsbökkum og fór leikurinn þannig að Sindramenn unnu með 79 stigi gegn 60 heimamanna. Loks tók Skallagrímur á móti Hrunamönnum…Lesa meira

true

Ráðuneytisstjórar rýna bága stöðu bænda

Ríkisstjórnin samþykkti fyrir helgi á fundi sínum að koma á fót starfshópi ráðuneytisstjóra þriggja ráðuneyta; matvælaráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og innviðaráðuneytisins. Hópurinn mun leggja mat á þá stöðu sem upp er komin í landbúnaði í kjölfar endurtekinna hækkana á stýrivöxtum og verðhækkana á aðföngum. Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir að höfuðstóll verðtryggðra lána hefur hækkað…Lesa meira