
Steinþór Logi Arnarsson og Eydís Anna Kristófersdóttir búa ásamt syni sínum, Kristófer Loga, í Stórholti í Dölum. Ljósm. úr safni/sþ
Ráðstefnan „Laun fyrir lífi – ungra bænda og íslenskra sveita“
Næstkomandi fimmtudag klukkan 13 efna Samtök ungra bænda til baráttufundar fyrir lífi sínu og sveitanna. Fer fundurinn fram í Salnum í Kópavogi. Átta ungir bændur munu taka til máls auk þriggja gestafyrirlesara auk þess sem málin verða rædd í pallborði með þátttöku gesta í sal. „Vonast er eftir troðfullu húsi og góðri mætingu ráðherra og þingmanna sem halda á fjöreggi þjóðarinnar í matvælaframleiðslu, landbúnaðinum, sem fjöldi ungs fólks er um þessar mundir að flýja eða forðast. Þeir sem ekki eiga heimangegnt geta fylgst með fundinum í streymi,“ segir Steinþór Logi Arnarsson formaður Félags ungra bænda. Hann er bóndi í Stórholti í Dölum.