
Nemendur á spjalli. Á borðinu var mynd af alþingismönnum og QR kóði þar sem hægt var að spila viðtal við þingmennina, en nemendur höfðu brugðið sér í þinghúsið við Austurvöll og tekið þá tali. Ljósm. mm
Mannréttindi og jafnrétti á lífsnámsdögum í Menntaskóla Borgarfjarðar
Síðdegis á fimmtudaginn opnuðu nemendur og starfsfólk Menntaskóla Borgarfjarðar dyr skólans og sýndu gestum afrakstur lífsnámsviku sem þá var að ljúka. Í þessari viku, sem er á hverri önn í skólastarfinu, er hefðbundin stundaskrá brotin upp, nemendur velja sér hópa og vinna skemmtileg verkefni. Signý Óskarsdóttir hjá MB tók saman fyrir Skessuhorn upplýsingar um lífsnámið: