Framkvæmdir að hefjast við nýbyggingu í Borgarnesi fyrr á árinu. Í sveitarfélaginu eru 33 íbúðir nú í byggingu sem jafngildir 1,79% af heildarfjölda bygginga sem fyrir eru. Ljósm. gj

Dregið hefur úr nýbyggingum á Vesturlandi um 85% á hálfu ári

Samkvæmt nýjustu talningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) var uppbygging íbúða mest á höfuðborgarsvæðinu í september síðastliðnum. Þar eru 69,2% af öllum íbúðum sem eru í byggingu í landinu. Flestar íbúðir eru í byggingu í Reykjavík (2.607 íbúðir) og næstflestar eru í Hafnarfirði (1.605 íbúðir). Utan höfuðborgarsvæðisins eru flestar íbúðir í byggingu í sveitarfélaginu Árborg (586 íbúðir) og Reykjanesbæ (399 íbúðir). Á Akranesi voru 299 íbúðir í byggingu í september síðastliðnum. Samdráttur í fjölda íbúða í byggingu er í flestum sveitarfélögum, mestur í Mosfellsbæ (45,5%) og Kópavogi (7,4%). Fjölgun er í Reykjavík um 7,2%.