
Samstarfi um Umhverfis- og skipulagssvið á Snæfellsnesi slitið
Árið 2021 ákváðu fjögur sveitarfélög á Snæfellsnesi að stofna nýtt sameiginlegt svið umhverfis- og skipulagsmála. Þetta voru Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit og Stykkishólmsbær, en þau tvö síðastnefndu hafa nú eins og kunnugt er sameinast í eitt sveitarfélag, Sveitarfélagið Stykkishólm. Auglýst var eftir sviðsstjóra umhverfis- og skipulagsmála til að stýra nýju sviði og leiða þróun umhverfis-, skipulags- og byggingarmála auk yfirstjórnar verklegra framkvæmda. Viðkomandi átti jafnframt að gegna embætti sameiginlegs skipulagsfulltrúa sveitarfélaganna fjögurra. Þá var jafnframt auglýst eftir sameiginlegum byggingarfulltrúa til að starfa á sviðinu. Var Kristín Þorleifsdóttir ráðin í starf skipulagsfulltrúa og starfaði á sviðinu ásamt byggingarfulltrúa og tveimur öðrum starfsmönnum.