Fréttir

true

Þorsteinn Bárðarson á heimsmeistaramóti

Hjólreiðagarpurinn Þorsteinn Bárðarson úr Snæfellsbæ tók nýverið þátt í Heimsmeistaramótinu í Gravel, í flokki 45-49 ára, sem fram fór í bænum Pieve di Soligo á Ítalíu. Gravel keppnin er á malarvegi með krefjandi brekkum fyrir hjólreiðamennina. Leiðin er 164 kílómetra löng og reynir verulega á keppendur. Þrír aðrir keppendur voru frá Íslandi ásamt Þorsteini og…Lesa meira

true

Farnir að kalla þetta Stormahaustið mikla

„Stormahaustið mikla,“ segja sjómenn þegar veðráttan undanfarnar vikur ber á góma. Veðráttan hefur vissulega oft verið erfið á þessum árstíma, en sjaldan eins og á þessu hausti. Þar af leiðandi hafa bátar róið stopult en þó koma glennur þar sem hægt er að komast á sjó. Dragnótarbátar voru á sjó á sunnudag og mánudag, en…Lesa meira

true

Vesturland er þátttakandi í þróunarverkefninu Gott að eldast

Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög á landinu munu taka þátt í þróunarverkefnum sem ganga út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið auglýstu í sumar eftir slíku samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir. Áhugi fyrir þátttöku var mikill og bárust 19 umsóknir. Þróunarverkefnin eru hluti af aðgerðaáætluninni…Lesa meira

true

Haustið minnir á sig

Hríðarveður á fjallvegum norðanlands nær hámarki um hádegi í dag, en því fylgir krapi í byggð og snjór á fjallvegum. Snjór huldi í morgun jörðu niður á láglendi m.a. á Snæfellsnesi, í Dölum og uppsveitum Borgarfjarðar, en meðfylgjandi mynd er af Grábrók í Norðurárdal. Vegagerðin varar við að suðaustanlands verða staðbundið snarpar hviður allt að…Lesa meira

true

Býr útvarpsmaður í þér – spyr Útvarp Akraness

„Útvarp Akraness er órjúfanlegur hluti jólaundirbúnings Skagamanna og hefur verið árum saman. Undirbúningur útvarpsins í ár er hafinn og verður útvarpað samkvæmt venju fyrstu helgina í aðventu sem í ár er 1.-3. desember,“ segir í tilkynningu. Dagskráin er í smíðum og ljóst að þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. „Til að tryggja…Lesa meira

true

Bæta löndunaraðstöðu við Norðurtanga

Þessa dagana er unnið að lengingu á trébryggjunni við Norðurtanga í Ólafsvík. Að sögn Björn Arnaldssonar hafnarstjóra á að lengja trébryggjuna um átta metra, breikka um fjóra metra og hækka hana um 30 cm svo hún verði jafn há og og stálþilið. Við þessa breytingar verða þrír löndunarkranar við þetta þil við Norðurtanga þannig að…Lesa meira

true

Varað við norðan stormi frá því í nótt

Frá því í nótt og til miðnættis annað kvöld er gul viðvörun í gildi vegna norðan- og norðvestan hvassviðris við Breiðafjörð og á Faxaflóasvæðinu. Það verður norðvestan og norðan 15-23 m/s með snörpum vinhviðum, hvassast verður á Snæfellsnesi og við fjöll. Við Breiðafjörð má einnig búast við snjókomu með köflum á fjallvegum með líkum á…Lesa meira

true

Lykkja en ekki Bræðraborg – leiðrétt

Í síðasta tölublaði Skessuhorns var birt syrpa mynda af gömlum og vel við höldnum húsum á Akranesi. Einn myndatexti reyndist rangur og er beðist velvirðingar á því. Sagt er að húsið á meðfylgjandi mynd heiti Bræðraborg og sé á Skólabraut 2. Hið rétta nafn þess er Lykkja og stendur við Skólabraut 20.Lesa meira

true

Haustþing SSV var haldið í Reykholti

Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi var haldið í Reykholti í síðustu viku. Hátt í 60 manns tóku þátt, um 30 kjörnir fulltrúar, starfsfólk SSV og aðrir gestir. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis,- orku- og loftlagsráðherra ávarpið þingið og átti í framhaldi af því samtal við þingfulltrúa um það sem efst er á baugi í hans ráðuneyti.…Lesa meira

true

Guðbjörg Bjartey sló Akranesmet í 50m skriðsundi

22 sundmenn frá ÍA tóku þátt á Arenamóti Ægis sem fram fór um helgina. „Þetta var fyrsta mótið hjá C-hópi í haust og var mjög gaman að sjá ungmennin keppa aftur, þau stóðu sig mjög vel og gleðilegt að sjá frábærar framfarir í tækni hjá þeim. Í C-hópi eru kakkar á aldrinum 8-11 ára sem…Lesa meira