
Grábrók í Norðurárdal var grá í morgun. Ljósm. sþ
Haustið minnir á sig
Hríðarveður á fjallvegum norðanlands nær hámarki um hádegi í dag, en því fylgir krapi í byggð og snjór á fjallvegum. Snjór huldi í morgun jörðu niður á láglendi m.a. á Snæfellsnesi, í Dölum og uppsveitum Borgarfjarðar, en meðfylgjandi mynd er af Grábrók í Norðurárdal.
Vegagerðin varar við að suðaustanlands verða staðbundið snarpar hviður allt að 40-50 m/s frá Eyjafjöllum og austur í Berufjörð til morguns. Sandfok er á Skeiðarársandi.