Unnið við bryggjuna við Norðurtanga. Ljósmyndir: AF

Bæta löndunaraðstöðu við Norðurtanga

Þessa dagana er unnið að lengingu á trébryggjunni við Norðurtanga í Ólafsvík. Að sögn Björn Arnaldssonar hafnarstjóra á að lengja trébryggjuna um átta metra, breikka um fjóra metra og hækka hana um 30 cm svo hún verði jafn há og og stálþilið. Við þessa breytingar verða þrír löndunarkranar við þetta þil við Norðurtanga þannig að hægt verður að landa úr þremur bátum samtímis og ætti það að minnka löndunarbið töluvert. Björn segir í samtali við Skessuhorn að kostnaður við þessar framkvæmdir sé 102 miljónir króna en verktaki er Köfunarþjónusta Sigurðar ehf. Áætlað er að framkvæmdum ljúki fyrir upphaf strandveiðanna næsta vor, þ.e. 1. maí 2024.

Bæta löndunaraðstöðu við Norðurtanga - Skessuhorn