Fréttir

true

Grímur AK aflahæsti strandveiðibáturinn yfir landið

Landssamband smábátaeigenda hefur tilkynnt eigendum Gríms AK að þeir hafi verið aflahæstir á strandveiðum sumarsins. Skipstjóri á Grími er Árni Freyr Stefánsson en honum til halds og trausts um borð er Stefán Jónsson faðir hans og fyrrum skipstjóri. Aflaverðmætið á Grími í sumar var rúmar 14 milljónir króna og lönduðu þeir feðgar um 48 tonnum…Lesa meira

true

Bólusetningar að hefjast á heilsugæslustöðvunum

Á heilsugæslustöðvum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands eru nú að hefjast bólusetningar gegn inflúensu og Covid-19. Fram kemur í auglýsingu frá HVE, sem birt er í Skessuhorni í dag, að bólusetning við inflúensu er einungis í boði fyrir forgangshópa, þ.e. 60 ára og eldri, en fyrir 60 ára og yngri með undirliggjandi sjúkdóma; (hjarta-, lungna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki,…Lesa meira

true

Opinn fundur á Akranesi í kvöld um Sundabraut

Vegagerðin og Akraneskaupstaður, í samvinnu við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, standa í kvöld fyrir kynningarfundi fyrir íbúa og hagaðila þar sem Sundabraut verður til umfjöllunar. Fundurinn verður 19:30 í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að Vegagerðin, í samvinnu við Reykjavík, vinni að undirbúningi Sundabrautar frá Sæbraut að Kjalarnesi. „Markmið framkvæmdarinnar…Lesa meira

true

Endurbætur á sjóvarnargörðum í Snæfellsbæ

Unnið hefur verið við lagfæringar á sjóvarnargörðum í Snæfellsbæ í sumar. Á mánudag var unnið að endurbótum á garðinum við Ólafsbraut í Ólafsvík, milli innra- og ytra Klifs. Garðurinn er 513 metra langur og er nú endurhlaðinn og hækkaður. Vegagerðin er framkvæmdaraðili og á mánudaginn var verið að lengja ræsið við Hvalsá og steypa undirstöðu…Lesa meira

true

Vinna að alþjóðlegu verkefni um votlendi í Grunnafirði og Hvalfirði

Fuglavernd hefur undanfarna mánuði skoðað möguleika þess að endurheimta votlendi í kringum Grunnafjörð og í Hvalfirði sem hluta af alþjóðlegu verkefni sem fjármagnað er af náttúruverndarfélagi Cambridge í Bretlandi (ELSP – Endangered Landscape and Seascape Programme). Verkefnið miðar m.a. að velferð fugla og umhverfisáhrifum þurrkaðra votlenda. Blaðamaður Skessuhorns hitti í liðinni viku á þær Polina…Lesa meira

true

Þæfingur á Bröttubrekku

Hálka er nú á Láxárdalsheiði og víðar í Dölum. Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði og á nokkrum leiðum á Snæfellsnesi. Búið er að opna veginn um Bröttubrekku, en þar er nú þæfingur. Hjólaskófa var föst utan vegar og þar af leiðandi var einungis önnur akrein vegarins fær þar framhjá. Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitssemi…Lesa meira

true

Fjármálaráðherra segir af sér embætti

Bjarni Benediktsson tilkynnti á blaðamannfundi í morgun afsögn sína úr embætti fjármála- og efnahagsráðherra. Það gerði hann í framhaldi af útkomu skýrslu umboðsmanns Alþingis um vanhæfi hans við söluna á Íslandsbanka. Umboðsmaður telur að fjármálaráðherra hafi ekki verið hæfur til að samþykkja tillögu Bankasýslunnar um sölu á hlut í Íslandsbanka í mars á síðasta ári,…Lesa meira

true

Krónan íhugar starfsemi í Borgarnesi

Orðrómur hefur verið um að Krónan sé búin að festa kaup á lóð í Borgarnesi. Skessuhorn leitaði staðfestingar á því hjá forsvarsmönnum fyrirtækisins. Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar segir sögusagnirnar ekki sannar, en staðfestir þó að verslanakeðjan hafi undanfarið haft augun opin varðandi staðsetningu fyrir verslun í Borgarnesi. ,,Við erum ávallt með augun opin fyrir áhugaverðum…Lesa meira