Þótt enn séu tæpar þrjár vikur eftir af sumrinu samkvæmt almanakinu, verður veðrið ekki samkvæmt því, einkum norðan lands.

Varað við norðan stormi frá því í nótt

Frá því í nótt og til miðnættis annað kvöld er gul viðvörun í gildi vegna norðan- og norðvestan hvassviðris við Breiðafjörð og á Faxaflóasvæðinu. Það verður norðvestan og norðan 15-23 m/s með snörpum vinhviðum, hvassast verður á Snæfellsnesi og við fjöll. Við Breiðafjörð má einnig búast við snjókomu með köflum á fjallvegum með líkum á versnandi færð.

Fyrir norðanvert landið er appelsínugul viðvörun í gildi en þar verður rigning eða slydda á láglendi, en snjókoma á heiðum, allvíða talsverð eða mikil úrkoma. Færð versnar því ört á fjallvegum norðanlands og samgöngutruflanir eru líklegar.

Varað við norðan stormi frá því í nótt - Skessuhorn