
Vélstjórinn Börkur Hrafn Árnason gat ekki setið á sér og vildi láta mynda sig með þennan undirmáls þorsk; „svo menn halda ekki að það séu bara stórþorskur í Breiðafirði,“ sagði hann og hló. Ljósmyndir: AF
Farnir að kalla þetta Stormahaustið mikla
„Stormahaustið mikla,“ segja sjómenn þegar veðráttan undanfarnar vikur ber á góma. Veðráttan hefur vissulega oft verið erfið á þessum árstíma, en sjaldan eins og á þessu hausti. Þar af leiðandi hafa bátar róið stopult en þó koma glennur þar sem hægt er að komast á sjó. Dragnótarbátar voru á sjó á sunnudag og mánudag, en aflinn hefur þó oft verið betri. Voru þeir að fá þetta 3,6 og upp í 6 tonn eftir daginn. Drengirnir á Matthíasi SH 21 voru þó kátir þótt aflinn hafi einungis verið 3,6 tonn eftir stuttan dag, enda kaldaskítur á miðunum.