Býr útvarpsmaður í þér – spyr Útvarp Akraness

„Útvarp Akraness er órjúfanlegur hluti jólaundirbúnings Skagamanna og hefur verið árum saman. Undirbúningur útvarpsins í ár er hafinn og verður útvarpað samkvæmt venju fyrstu helgina í aðventu sem í ár er 1.-3. desember,“ segir í tilkynningu.

Dagskráin er í smíðum og ljóst að þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. „Til að tryggja fjölbreytnina vill útvarpsnefndin gjarnan komast í kynni við þá sem hafa góða hugmynd að útvarpsþætti eða eiga sér þann draum að gera eigin útvarpsþátt og biður hugmyndaríka einstaklinga að hafa samband á netfangið utvarpakraness@gmail.com

Býr útvarpsmaður í þér - spyr Útvarp Akraness - Skessuhorn