
Í maí mánuði voru 5.800 einstaklingar atvinnulausir hér á landi samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Hlutfall atvinnulausra var 2,5%, hlutfall starfandi var 80% og atvinnuþátttaka 82%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,2 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi stóð nánast alveg í stað og atvinnuþátttaka minnkaði lítillega, eða um 0,8 stig.Lesa meira








