
Meðfylgjandi myndir tóku ljósmyndarar Skessuhorns: vaks/ki/mm/tfk
Vel heppnað Norðurálsmót í smá bleytu – Myndasyrpa
Norðurálsmótið í knattspyrnu fór fram um síðustu helgi í 39. skiptið og stóð frá fimmtudegi til sunnudags. Þátttakan á mótinu í ár var aðeins meiri en í fyrra og voru keppendur alls 1.830 í 7. og 8. flokki drengja og stúlkna. Veðrið var með ágætum flesta dagana en þó rigndi nokkuð mikið seinni part laugardags og á sunnudeginum en allir fóru sáttir heim eftir viðburðaríka helgi. Ljósmyndarar Skessuhorns voru á ferðinni um helgina og tóku nokkrar myndir af mótinu sem birtast hér.






















