Unnið við vegabætur

Sumarið er tími viðgerða á þjóðvegum landsins. Vinnuflokkar færa sig á milli staða og taka hvern veghlutann af öðrum og leggja yfir nýtt slitlag. Meðfylgjandi mynd var tekin á Akrafjallsvegi norðan við fjallið í gær. Þá var meðal annars heimreiðin að Hvanneyri lagfærð sama dag svo eitthvað sé nefnt.

Unnið við vegabætur - Skessuhorn