Bjartmar bóndi á Norðurreykjum í Hálsasveit er byrjaður af krafti. Ljósm. bhh

Heyskapur fer á fullt næstu daga

Í dag og næstu þrjá daga gera veðurfræðingar ráð fyrir þurru veðri um vestanvert landið. Síðdegis á sunnudag kemur þó lægð upp að vestanverðu landinu og gæti þá aftur farið að rigna. Bændur í landshlutanum eru nú að vígbúast með sláttuvélar tengdar aftan, og jafnvel einnig framan, við dráttarvélar sínar. Spretta er orðin þokkaleg á snemmábornum túnum og því ekki eftir neinu að bíða að hefja slátt af krafti.

Heyskapur fer á fullt næstu daga - Skessuhorn