Hópur ungra iðkenda á æfingu með Gunnari og Garðari. Ljósm. hig

Goðsagnir gefa af sér

Bræðurnir og knattspyrnu goðsagnir Skallagríms, þeir Gunnar og Garðar Jónssynir, mættu í gær á æfingasvæði Skallagríms í Borgarnesi til að gefa yngri flokkum Skallagríms fjölda fótbolta að gjöf. Gunnar og Garðar spiluðu lengi vel með Skallagrími ásamt því að koma að þjálfun hjá félaginu. Að sögn Jóns Theodórs Jónssonar, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Skallagríms, er þetta gríðarlega mikilvæg gjöf fyrir yngri flokka starfið og hann segir einnig að bræðurnir hafi stutt Skallagrím til fjölda ára. Eitthvað af þeim fótboltum sem bræðurnir gáfu eru nú á leið með yngri flokkum félagsins á Pollamótið í Vestmannaeyjum. Vonandi skora pollarnir svipað af mörkum á mótinu og bræðurnir skoruðu á sínum tíma fyrir þá gulklæddu.

Goðsagnir gefa af sér - Skessuhorn