
Heyskapurinn í Gunnarsholti var vélvæddur um 1950. Þessi mynd var tekin sumarið 1948 og er með síðustu skiptunum sem hestar voru notaðir í heyskapnum. Drengurinn heitir Sveinbjörn Benediktsson og múgavélin er af gerðinni IHC.
Breyttu sandauðn í langstærsta bú landsins
Nýlega kom út bókin Saga Gunnarsholts á Rangárvöllum eftir Svein Runólfsson. Bókin er tæpar 500 blaðsíður með yfir 1000 ljósmyndum. Í bókinni er m.a. rakin saga kornræktar og fjallað um landgræðsluflugið svo fátt eitt sé nefnt.