Sameina fjögur stjórnendafélög á fundi í kvöld

Í kvöld klukkan 19 fer fram stofnfundur fjögurra stjórnendafélaga á suðvesturhorni landsins. Þetta eru Stjórnendafélag Vesturlands, Stjórnendafélag Suðurnesja, Stjórnendafélag Suðurlands og Jaðar, félag stjórnenda á Akranesi. Stofnfundurinn fer fram að Hlíðarsmára 8 í Kópavogi. „Allir félagsmenn sameiningarfélaganna eiga rétt til þátttöku á fundinum. Boðið verður upp á léttar veitingar. Boðið verður upp á rútuferðir frá Stykkishólmi, Keflavík og Selfossi,“ segir í tilkynningu.

Sameina fjögur stjórnendafélög á fundi í kvöld - Skessuhorn