
Vegna vinnu í Hvalfjarðargöngum verða þau lokuð þriðjudaginn 4. miðvikudaginn 5. og fimmtudaginn 6. júní frá miðnætti og til kl. 06:30 alla dagana. Vegagerðin bendir á hjáleið um Hvalfjarðarveg (47).Lesa meira

Vegna vinnu í Hvalfjarðargöngum verða þau lokuð þriðjudaginn 4. miðvikudaginn 5. og fimmtudaginn 6. júní frá miðnætti og til kl. 06:30 alla dagana. Vegagerðin bendir á hjáleið um Hvalfjarðarveg (47).Lesa meira

Reynir Sandgerði og Víkingur Ólafsvík tókust á í 2. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var viðureignin á Brons vellinum í Sandgerði. Leikurinn hófst frekar brösuglega því eftir aðeins mínútu leik þurfti annar aðstoðardómarinn að yfirgefa völlinn eftir að hafa meiðst við störf á hliðarlínunni. Leikmenn gengu til búningsklefa og dvöldu þar í um…Lesa meira

Dagskrá sjómannadagsins á Akranesi var með hefðbundnu sniði. Dagskráin hófst með minningarstund í kirkjugarðinum, þá var messa í Akraneskirkju þar sem tveir sjómenn voru heiðraðir fyrir störf sín. Kellingar gengu sögugöngu og fræddu gesti um skólahald. Um klukkan 14 hófst dagskrá á bryggjunni og höfninni í umsjón Björgunarfélags Akraness. Veðrið hefur oft verið betra á…Lesa meira

Síðastliðinn fimmtudag var undirritaður samningur við Félag eldri borgara í Hvalfjarðarsveit um endurgjaldslaus afnot af íþróttasalnum í Heiðarborg, tvo daga í viku, frá 1. júní til 21. ágúst næstkomandi. Félagið hyggst með afnotum að húsinu halda uppi félagsstarfi og hreyfingu fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu á þriðjudögum og fimmtudögum í sumar. „Sveitarfélagið óskar FEBHV velfarnaðar…Lesa meira

Það vakti nokkra eftirtekt í morgun klukkan rúmlega átta þegar tveir nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi mættu í skólann ríðandi, báðir með tvo til reiðar. Í dag var síðasti skóladagurinn þeirra á Varmalandi en þeir Askur Týr L. Egilsson og Bergur Brynjarsson hafa verið í skólanum alla sína grunnskólagöngu. Á morgun, þriðjudaginn 4. júní, verða…Lesa meira

Það var mikið fjör í húsakynnum Dekk og smur í Stykkishólmi síðastliðinn föstudag þegar fagnað var 30 ára afmæli verkstæðisins. Í tilefni tímamótanna var Hólmurum og öðrum viðskiptavinum boðið á opið hús. Gæddu gestir sér á veitingum í föstu og fljótandi formi, en meðal annars var boðið upp á smárétti frá Skúrnum, afmælisköku frá Nesbrauði…Lesa meira

Á föstudaginn komu félagskonur í Lionsklúbbnum Eðnu á Akranesi færandi hendi og færðu hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða hálfa milljón króna að gjöf. Peningagjöfin verður notuð upp í kostnað við að reisa girðingu í garði Höfða að sunnanverðu. Markmiðið með að koma upp slíkri girðingu er að skapa öruggt umhverfi til útiveru fyrir heilabilaða íbúa heimilisins.…Lesa meira

Síðdegis í dag og næstu tvo daga er búist við mjög slæmu veðri miðað við árstíma um mestallt landið. Það hvessir seinnipartinn í dag og bætir í úrkomu, norðvestan hvassviðri eða stormur verður á Norður- og Austurlandi í kvöld með slyddu eða snjókomu. Kólnandi veður. Norðan og norðvestan 13-23 m/sek á morgun, hvassast austantil. Slydda…Lesa meira

Í gærkvöldi var framinn táknrænn gjörningur á Skógarstrandarvegi í Dölum. Meðfylgjandi myndir voru teknar vestan við bæinn Gunnarsstaði á Skógarströnd. Skessuhorni voru sendar myndirnar en þess jafnframt óskað að myndhöfunda yrði ekki getið, enda um borgaralega óhlýðni að ræða. Búið er að planta fallegum sumarblómum í dýpstu holurnar í veginum. Gjörningur þessi er samkvæmt heimildum…Lesa meira

Sjómannadagshelgin í Grundarfirði fór þokkalega vel fram um liðna helgi. Sjómenn komu með fiskasýningu á leikskólann á föstudagsmorguninn. Krakkasprell var í sundlauginni á föstudeginum og svo kom Íþróttaálfurinn í heimsókn. Á laugardeginum bauð Vélsmiðja Grundarfjarðar upp á hoppukastala og sprell áður en hefðbundin hátíðarhöld voru á hafnarsvæðinu. Sjómannadagsráð bauð uppá pylsur og safa og svo…Lesa meira