Fréttir

true

Bambi fór á flakk og rak áleiðis að Látrabjargi

Á mánudag barst beiðni til björgunarsveitarinnar Lífsbjargar um verðmætabjörgun en í óveðrinu sem geisaði á laugardaginn síðasta, hafði fríholt eða bambi losnað við Grundarfjarðarhöfn. Höfnin óskaði eftir því að sjófarendur hefðu augu með því en bambinn sást svo í gær og var þá tíu mílur SV af Látrabjargi og barst því beiðni frá Grundarfjarðarhöfn og…Lesa meira

true

Breytingar framundan hjá Mæstró

Matarvagninn Mæstró street food hefur verið fastur punktur í miðbæ Grundarfjarðar síðustu sumur. Vagninn sjálfur er kominn til ára sinna þó að veitingarnar úr honum standi alltaf fyrir sínu. Nú hafa eigendur Mæstró keypt matargám sem mun taka við af vagninum. Þau Sólveig Ásta Bergvinsdóttir og Almar Þorleifsson eru eigendur Mæstró og opnuðu núna í…Lesa meira

true

Björn Axel bjargvættur Ólsara

Víkingur Ólafsvík og Selfoss mættust í fjórðu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Leikurinn átti að vera á laugardaginn en var frestað vegna þess að hávaðarok var í Ólafsvík og aðstæður ekki alveg til þess fallnar að sparka í tuðru. Fyrir leik voru bæði lið taplaus í deildinni…Lesa meira

true

Skallagrímur steinlá á Grýluvelli

Leiknir voru þrír leikir í 4. deild karla í knattspyrnu í gær. Í Hveragerði tóku heimamenn í Hamri á móti Skallagrími en Borgnesingar náðu í sterkan sigur gegn KFS síðastliðinn þriðjudag. Lið Hamars náði jafntefli á heimavelli í síðustu umferð og var því búist við jöfnum leik. Annað kom þó á daginn. Vafalaust hafði áhrif…Lesa meira

true

Fimleikadeild ÍA sigursæl á Íslandsmóti

Um síðustu helgi var Íslandsmót í hópfimleikum og stökkfimi haldið á Seltjarnarnesi undir stjórn Fimleikadeildar Gróttu. FIMÍA átti stóran hóp keppenda, alls átta lið á mótinu. Keppt var í gólfæfingum, dýnustökki og á trampólíni en gólfæfingar þurfa að innihalda níu erfiðleikastig; fjögur jafnvægi, þrjú hopp og tvö heljarstökk; dýnustökk en þar verða keppendur að framkvæma…Lesa meira

true

Kosið verður í fjölbraut að þessu sinni

Næstkomandi laugardag verður sjöundi forseti lýðveldisins kosinn. Nýr kjörstaður er á Akranesi, í stærsta sveitarfélagi landshlutans. Nú verður kosið í húsi Fjölbrautaskóla Vesturlands við Vogabraut 5. Í undanförnum kosningum hefur ýmist verið kosið í Brekkubæjarskóla eða í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Kjörfundur á Akranesi hefst klukkan 9 en lýkur klukkan 22. Kjördeildir eru fjórar á Akranesi.Lesa meira

true

Bláfánanum flaggað í tólfta sinn á Langasandi á morgun

Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf í umhverfismálum. Meginmarkmið verkefnisins er að vernda lífríki haf – og strandsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er veittur þeim baðströndum sem uppfylla ákveðin skilyrði sem lúta að eftirfarandi þáttum; umhverfisfræðslu og upplýsingagjöf, vatnsgæðum, umhverfisstjórnun,…Lesa meira

true

Harður árekstur tveggja bíla í Kolgrafafirði

Undir kvöld í gær varð harður tveggja bíla árekstur í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi og höfnuðu báðir bílar utan vegar. Tiltækt lið viðbragðsaðila var kallað á vettvang en m.a. þurfti að beita klippum slökkviliðs á annan bílinn til að ná ökumanni hans út. Viðkomandi var fluttur slasaður á Sjúkrahúsið á Akranesi til aðhlynningar. Uppfært kl 10:50:…Lesa meira

true

Hreinsuðu nánasta umhverfi skólans

Vikuna 13. – 17. maí síðastliðinn var hreinsivika í Grunnskólanum í Borgarnesi. Tiltektardagurinn ,,Tökum til hendinni“ er eitt af þeim verkefnum sem skólinn tekur sér fyrir hendur á vorin og felst í því að hreinsa nánasta umhverfi skólans. Svæðinu er þá skipt niður á milli bekkja og skipuleggja nemendur og kennarar hvernig þeir munu vinna…Lesa meira

true

Diskóeyjan sló í gegn og var tekin upp til sýningar

Sýningum á Diskóeyjunni í uppfærslu nemenda í Brekkubæjarskóla á Akranesi lauk um síðustu helgi. Alls voru sýndar ellefu sýningar, uppselt var á níu þeirra og nánast fullt á hinar tvær. Síðasta miðvikudag kom tökulið frá kvikmyndafyrirtækinu Glassriver sem framleiðir kvikmyndir og sjónvarpsefni og tók sýninguna upp. Fyrirtækið hefur meðal annars séð um upptökur á kvikmyndinni…Lesa meira