
Kosið verður í fjölbraut að þessu sinni
Næstkomandi laugardag verður sjöundi forseti lýðveldisins kosinn. Nýr kjörstaður er á Akranesi, í stærsta sveitarfélagi landshlutans. Nú verður kosið í húsi Fjölbrautaskóla Vesturlands við Vogabraut 5. Í undanförnum kosningum hefur ýmist verið kosið í Brekkubæjarskóla eða í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Kjörfundur á Akranesi hefst klukkan 9 en lýkur klukkan 22. Kjördeildir eru fjórar á Akranesi.